Leikið um 3. sæti í Kína
Í dag leikur U-15 ára landslið Íslands um 3. sætið á Ólympíuleikum æskunnar á sem fara fram í Nanjing í Kína en Keflavík á tvo leikmenn í liðinu. Það eru þeir Sigurbergur Bjarnason og Hilmar Andrew McShane en þjálfari liðsins er Keflvíkingurinn Freyr Sverrisson.
Íslenska liðið vann Hondúras en tapaði gegn Perú í riðlakeppnnini. Liðið tapaði síðan gegn Suður-Kóreu í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum og leikur því gegn Grænhöfðaeyjum um 3. sætið í mótinu.
Þess má geta að á vef keppninnar má finna viðtal við Hilmar Andrew þar sem er m.a.. rætt um áhrif föður piltsins sem er auðvitað Paul McShane.
Á efstu myndinni hér að neðan eru þeir Sigurbergur, Freyr og Hilmar Andrew.