Leikir hjá 3. og 4. flokki í dag
Í dag kl. 18:30 taka stelpurnar í 3. flokki á móti FH í undanúrslitum í bikarkeppninni. Leikið er á Iðavöllum og eru allir sem tök hafa á að mæta og hvetja stelpurnar.
Í dag leikur 4. flokkur kvenna einnig en þær mæta ÍBV á Iðavöllum og hefst sá leikur kl. 15:00.
Stelpurnar í 3. flokki leika í undanúrslitum bikarkeppninnar í dag.