Leikmaður til reynslu
Í dag kemur leikmaður til reynslu hjá Keflavík en sá heitir Howard Fondyke. Hann verður hér í viku og mun m.a. taka þátt í leiknum gegn Selfossi á laugardegi. Howard er 22ja ára miðjumaður og kemur frá Ástralíu. Hann hefur leikið með U-23 ára landsliði Ástrala og á að baki nokkra leiki í áströlsku deildinni.