Leiknir R. - Keflavík á laugardag kl. 13:00
Þá er komið að síðasta leik sumarsins í Inkasso-deildinni en það er útileikur gegn Leikni R. á laugardaginn. Leikurinn verður á Leiknisvelli og þar verður flautað til leiks kl. 13:00. Fyrir leikinn er Keflavík í 3. sæti deildarinnar með 34 stig en Leiknismenn sitja í 6.-7. sæti með 28 stig. Það er ekki að miklu keppa en okkar menn geta þó tryggt sér 3. sætið með sigri í leiknum. Dómari á Leiknisvellinum verður Jóhann Gunnar Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Daníel Ingi Þórisson og Helgi Sigurðsson en Viðar Helgason er svo eftirlitsmaður KSÍ.