Fréttir

Knattspyrna | 27. júlí 2011

Leiknum gegn KR frestað

Leik Keflavíkur og KR í 13. umferð Peps-deildarinnar hefur verið frestað vegna þátttöku KR-inga á Evrópukeppninni.  Leikurinn átti að fara fram 3. ágúst en nýr leikdagur hefur ekki verið ákveðinn.  Næsti leikur Keflavíkur er því útileikur gegn FH á Kaplakrikavelli sunnudaginn 7. ágúst kl. 19:15.


Úr fyrri leik KR og Keflavíkur á KR-velli.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)