Fréttir

Knattspyrna | 28. apríl 2004

Leikur hjá 3. flokki í dag

Í dag, miðvikudaginn 28. apríl, leikur 3. flokkur karla gegn Stjörnunni í Faxaflóamótinu.  Upphaflega átti leikurinn að fara fram á malarvellinum að Bessastöðum en Stjörnumenn óskuðu eftir því að fá að leika í höllinni okkar.  Leikurinn fer því fram í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 19:00.  Staðan í riðlinum er gríðarlega jöfn og flest lið eiga enn möguleika á að sigra riðilinn og eru Keflavík og Stjarnan í þeim hópi, en þessi lið ásamt Breiðablik hafa tapað fæstum stigum.  Það ætti því að vera þess virði að kíkja í Reykjaneshöllinni í kvöld og sjá spennandi og vonandi skemmtilegan leik.

Staðan í riðlinum:  http://www.ksi.is/asp/listar/mot.asp?MotNumer=6518.



Þorsteinn Þorsteinsson og félagar hans í 3. flokki
verða í eldlínunni í kvöld gegn Störnunni.