Fréttir

Lengjubikarinn af stað
Knattspyrna | 13. febrúar 2015

Lengjubikarinn af stað

Þá er næsta mót ársins að byrja en okkar menn hefjast handa í Lengjubikarnum um helgina.  Þá spilum við gegn Grindavík en leikurinn verður í Reykjaneshöllinni á laugardaginn kl. 12:00.  Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson og aðstoðardómarar þeir Helgi Mikael Jónasson og Hjalti Þór Halldórsson.

Keflavík leikur í riðli 3 í A-deild keppninnar.  Átta lið leika í riðlinum og það eru því margir leikir framundan á næstu vikum.  Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í 8 liða úrslitin ásamt tveimur liðum sem lenda í 3. sæti í riðlunum þremur.

Myndirnar með fréttinni eru frá leiknum gegn FH um 3. sætið í Fótbolta.net-mótinu.  Þar náðu okkar menn þriðja sætinu eftir vítaspyrnukeppni.