Létt yfir æfingu
Það var létt yfir æfingu hjá meistaraflokki þegar Jón Örvar liðsstjóri mætti með myndavélina og smellti af nokkrum myndum. Menn tóku vel á því enda stór verkefni framundan og menn ákveðnir í að fara í þau af fullum krafti. Tveir nýir leikmenn hafa bæst í hópinn, þeir Farid Zato og Chukwudi "Chuck" Chijindu, og þeir létu ekki sitt eftir liggja. Dói búningastjóri var líka upptekinn við að yfirfara hvítu varabúningana.
Hérna má sjá myndasafn Jón Örvars.