Liðsfréttir fyrir Grindavíkurleik
Næsti leikur Keflavíkur er útileikur gegn Grindavík á fimmtudag. Það er allt gott að frétta af okkar mönnum sem munu mæta frískir til leiks eftir ágætt jafntefli í Árbænum í fyrstu umferðinni. Denis Selimovic er kominn með leikheimild og er því tilbúinn í hópinn í næsta leik. Magnús Sverrir Þorsteinsson er að jafna sig af meiðslum á ökkla og enn er ekki ljóst hvort hann verður tilbúinn í slaginn í Grindavík. Aðrir eru heilir og í góðu standi.
Okkar menn á góðri stundu með einn Fylkismenn með.