Fréttir

Liðsfréttir fyrir Valsleikinn
Knattspyrna | 31. maí 2012

Liðsfréttir fyrir Valsleikinn

Þá er komið að næsta leik okkar manna í Pepsi-deildinni og að þessu sinni er það heimsókn á Hlíðarenda.  Okkur hefur gengið vel gegn Valsmönnum á heimavelli þeirra undanfarin ár og ekki tapað í síðustu tíu leikjum þar. 

Jóhann R. Benediktsson verður í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik og kemur Ísak Örn Þórðarson inn í 18 manna hópinn í hans stað.  Ísak hefur verið að berjast við meiðsli í vor og hefur ekki verið í leikmannahópnum í deildinni til þessa.  Gregor Mohar er enn að jafna sig eftir botnlangaskurð og stefnir að því að snúa aftur til leiks gegn FH um miðjan júní.  Aðrir eru hressir og í góðu standi og til í slaginn gegn Val.
 


Þessi leikmaður Keflavíkurliðsins setti snemma stefnuna á Pepsi-deildina...