Fréttir

Lokahóf yngri flokka á laugardag
Knattspyrna | 19. september 2012

Lokahóf yngri flokka á laugardag

Lokahóf fyrir unglingadeild Knattspyrnudeildarinnar verður haldið  laugardaginn 22. september kl.  11:00 í íþróttahúsinu við Sunnubraut.  Allir iðkendur og foreldrar þeirra eru hvattir til þess að mæta.

Veitt verða verðlaun og boðið upp á veitingar.  Gömul búningasett verða til sölu ásamt ýmsum varningi merktum Keflavík.  Nú stendur yfir skráning iðkenda fyrir næsta tímabil. Skráningin er rafræn í gegnum heimasíðu Keflavíkur eins og í fyrra.  Ef einhverjir hafa verið í vandræðum með að skrá sig geta þeir fengið aðstoð við það eftir lokahófið.