Lokahóf yngri flokka er 24. september
Lokahóf fyrir unglingadeild knattspyrnudeildarinnar verður haldið laugardaginn 24. september kl. 11:00 f.h. í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Allir iðkendur og foreldrar þeirra eru hvattir til þess að mæta.
Veitt verða verðlaun og boðið upp á veitingar. Gömul búningasett verða til sölu ásamt ýmsum varningi merktum Keflavík.
Æfingar byrja aftur 26. september.