Magnús kominn á samning
Undanfarið hefur verið lögð áhersla á það hjá Keflavík að gera leikmannasamninga við unga og upprennandi leikmenn félagsins. Á dögunum bættist nýr leikmaður í þann hóp en það er Magnús Ríkharðsson. Magnús er fæddur í maí árið 1995 og er því að verða 18 ára gamall. Hann leikur með 2. flokki en sinn fyrsta leik með meistaraflokki í Lengjubikarnum fyrir stuttu.