Magnús orðinn FIFA-dómari
Núna í byrjun þessa árs samþykkti FIFA tilnefningu frá KSÍ um að Magnús Þórisson dómari hjá okkur í Keflavík yrði milliríkjadómari. Magnús er því einn af fjórum FIFA-dómurum sem koma frá Íslandi en hinir eru Kristinn Jakobsson, Jóhannes Valgeirsson og Garðar Örn Hinriksson.
Af því tilefni var Magnús kallaður út á ráðstefnu fyrir nýja dómara frá Evrópu sem haldin var í Róm daganna 5.-9. febrúar. Þetta voru alls 38 dómarar sem þarna voru mættir og tilefnið var að sjálfsögðu að athuga hvort þeir væru hæfir dómarar. Tekið var strangt hlaupapróf og var prófið tekið á Olympíuleikvanginum í Róm. Þar á eftir var farið í munnlegt enskupróf því að sjálfsögðu verða menn að getað tjáð þig þegar þeir fara erlendis til að dæma. Að lokum var dómurunum skipt í vinnuhópa og þurftu hóparnir að skila inn þremur verkefnum og verja sín verkefni fyrir framan dómaranefnd UEFA. Þannig að álagið var talsvert á mannskapinn. Eftir hlaupaprófið og enskuprófið var ljóst að þrír hefðu fallið í hvoru prófi þannig að þeir fá ekki að dæma FIFA leiki fyrr en þeir hafa staðist þessar kröfur.
Að lokum komu svo allir bestu dómarar Evrópu og sátu með þeim ráðstefnunna síðustu tvo dagana. Að sjálfsögðu deildu þeir sinni miklu reynslu og var það hreint út sagt ótrúlegt fyrir nýliðana að hitta alla þessa kappa.
Að lokum vil ég óska Magnúsi Þórissyni innilega til hamingju með FIFA dómara réttindin og okkur öllum knattspyrnuunnendum hér í Keflavík með að hafa eignast FIFA dómara. Við erum ákaflega stolt af Magnúsi.
Fékk nokkrar myndir hjá Magnúsi sem ég læt fylgja með.
Kær kveðja
Jón Örvar Arason,
Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur
Mættir til Rómar.
Tveir góðir, Magnús og Pierluigi Collina.
Dómararnir undirbúa prófið.
Graham Poll Englandi, Magnús og Hugh Dallas Skotlandi.
Sá besti í bransanum býr í Leeds.
Magnús og Mike Riley.
Að lokum: Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn...