Fréttir

Magnús Þórir í Keflavík
Knattspyrna | 10. apríl 2013

Magnús Þórir í Keflavík

Magnus Þórir Matthíasson hefur skrifað undir hjá Keflavík og er því kominn aftur á heimaslóðir.  Hann skrifaði undir samninginn á Oliva Nova á Spáni þar sem Keflavíkurliðið er í æfinga- og keppnisferð.  Samningurinn gildir til loka ársins 2014.

Magnús Þórir er 23 ára gamall og er auðvitað Keflvíkingur.  Hann lék með yngri flokkum okkar og lék fyrst með meistaraflokki árið 2007.  Hann á að baki 52 leiki fyrir Keflavík í efstu deild (sjö mörk), sex bikarleiki (þrjú mörk) og einn leik í Evrópukeppni.  Magnús breytti til á síðasta ári og lék með Fylki en hefur nú snúið aftur.

Við bjóðum Magnús Þóri velkominn í hópinn.

Myndir: Jón Örvar