Mairead Fulton framlengir við Keflavík
Skoski leikmaðurinn Mairead Fulton, eða Maddy eins hún er kölluð, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Keflavíkur. Maddy sem er uppalinn hjá Celtic í Glasgow spilaði fyrst fyrir Keflavík seinnihluta sumars 2017 þar sem hún spilaði sex leiki. Í fyrra spilaði hún 26 leiki þegar stúlkurnar tryggðu sér sæti í Pepsi deild fyrir komandi sumar. Í þessum leikjum skoraði hún fimm mörk.
Maddy hefur verið í lykilhlutverki í Keflavíkurliðinu og er ekki síðri liðsmaður utan vallar og því eru það frábærar fréttir fyrir liðið og klúbbinn að hún hafi ákveðið að framlengja sinn samning.