Fréttir

Marjan Jugovic til Keflavíkur
Knattspyrna | 21. mars 2013

Marjan Jugovic til Keflavíkur

Keflavík hefur samið við Marjan Jugovic um að leika með liðinu til loka komandi keppnistímabils.  Marjan er 29 ára gamall framherji frá Serbíu.  Hann hóf feril sinn með Napredak Kruševac í heimalandi sínu og hefur einnig leikið með liðum í Póllandi, Bosníu-Herzgeovínu, Svartfjallalandi og Sýrlandi.  Síðast var hann á mála hjá Busaiteen í Barein.  Marjan er stór og öflugur framherji sem mun styrkja liðið okkar í baráttunni framundan.

Við bjóðum Marjan velkominn í Keflavík.