Knattspyrna | 15. mars 2005
Markaleikur hjá 3. flokki
3. flokkur karla lék æfingaleik gegn Grindavík í Reykjaneshöllinni s.l. föstudag. Keflavíkurpiltar spiluðu mjög vel og þá sérstaklega í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 4-0. Grindvíkingar náðu aðeins að klóra í bakkann í síðari hálfleik og urðu lokatölur 6-3 fyrir Keflavík. Helgi Eggertsson átti stórgóðan leik og setti 3 mörk, eitt mark hver gerðu þeir Björgvin Magnússon, Magnús Matthíasson og Stefán Lynn.