Fréttir

Knattspyrna | 6. desember 2010

Markasúpa og sigur í Futsal

Keflavík sigraði Víði 22-7 á Íslandsmótinu í Futsal en spilað var í Garðinum á föstudaginn. Þar með hefur Keflavík tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum á mótinu.  Yfirburðirnir hjá Keflavík voru miklir og allir útileikmennirnir skoruðu í leiknum.  Eyþór Ingi Júlíusson var í markinu og stóð sig vel að vanda.

Mörkin: Magnús Þórir 6, Magnús Sverrir 4, Bojan Stefán 3, Sigurður Gunnar 3, Gummi St. 2, Haraldur Freyr 2 (12 stoðsendingar að eigin sögn), Þorsteinn Þ. 1 og Viktor Smári 1.

Síðasti leikur liðsins í riðlinum verður sunnudaginn 12. desember kl. 13:30 í Austurbergi gegn Leikni/KB.

Myndir: Jón Örvar