Fréttir

Knattspyrna | 17. apríl 2009

Markmaður til reynslu

Eins og fram hefur komið er meistaraflokkur karla nú í æfingaferð í Portúgal.  Með í för er markvörðurinn Lasse Jörgensen sem verður til reynslu hjá okkur í ferðinni.  Eins og nafnið gefur til kynna er pilturinn danskur og hefur verið á mála hjá Silkeborg IF.  Lasse er 24 ára gamall, hávaxinn og öflugur markmaður, og er alinn upp hjá Silkeborg.  Hann hefur verið varamarkmaður liðsins undanfarin ár og leikið nokkra leiki með aðalliði félagsins.  Það kemur síðan í ljós hvort hann gengur til liðs við Keflavík en ljóst er að Ómar Jóhannsson getur ekki leikið með á þessari leiktíð vegna meiðsla.


Lasse á æfingu í Portúgal.
(Mynd: Jón Örvar)