Fréttir

Knattspyrna | 16. mars 2005

Markmannsþjálfari til Keflavíkur

Markmannsþjálfarinn Stefano Marsella er á leið til Keflavíkur.  Marsella er starfandi á Englandi og kemur hingað fyrir tilstuðlan Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara Keflavíkur.  Marsella mun ekki hafa fasta viðdvöl í Reykjanesbæ heldur mun hann mennta knattspyrnuþjálfara á vegu Keflavíkur í markmannsþjálfun.  Hann mun stjórna með þeim æfingum og leggja upp æfingaáætlanir fyrir markverði Keflavíkur í karla- og kvennaflokkum.  Marsella hefur störf á morgun, fimmtudaginn 17. mars. Marsella mun síðar koma reglulega til Keflavíkur og fylgja eftir þjálfun markvarða og þjálfara þeirra.