Meistaraflokkur kvenna spilar við Stjörnuna í Faxaflóamótinu í kvöld. Þetta er þriðji leikur Keflavíkur og hefur liðið sigrað í báðum leikjum sínum. Leikurinn verður á Stjörnuvelli kl. 20:00 og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta í Garðabæinn. Nýjir leikmenn hafa verið að bætast í hópinn og í gær fékk Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir leikheimild með Keflavík.