Fréttir

Knattspyrna | 15. júní 2011

Meistaraleikur Steina Gísla

Einn sigursælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu, Sigursteinn Gíslason, stendur nú í sinni stærstu baráttu á ferlinum. Sigursteinn, eða Steini Gísla eins og fótboltaheimurinn þekkir hann, greindist á dögunum með krabbamein í nýrum og lungum og framundan er mikil barátta við erfiðan andstæðing.

Við félagar og vinir Steina Gísla erum þess fullvissir að hann muni hafa betur í þessari baráttu. En til að létta undir með honum og fjölskyldu hans höfum við erkifjendurnir í KR og ÍA ákveðið að halda Meistaraleik Steina Gísla og mun allur ágóði af leiknum renna til þeirra.

Leikurinn fer fram á Akranesvelli á laugardaginn kemur. Þar munu gamlir samherjar Steina í KR og ÍA leiða saman hesta sína og rifja upp gamla takta á vellinum. Leikurinn hefst klukkan 17:15. Þar sem ferill Steina spannar nánast tvo áratugi þá eru margir af samherjunum komnir af léttasta skeiði. Því mun leikurinn verða í styttra lagi - 2x30mín.

Fullorðnir greiða 1000 kr. fyrir miðann, en frítt verður fyrir börn. Aðgöngumiðinn er jafnframt happdrættismiði. Hverjum áhorfanda er frjálst að kaupa fleiri en einn miða, bæði til að auka vinningslíkur sínar og að sjálfsögðu til að styrkja gott málefni. Vinningarnir eru frá Úrval Útsýn, Ellingsen, Veitingahúsinu Perlunni og Skjá Golfi.

Einnig verður boðið uppá grillaða hamborgara og kók „ala Steini Gísla“. Allur ágóðinn af sölunni mun renna í söfnunina.

Allir á völlinn og styðjum við bakið á sigurvegaranum Steina Gísla!

Tekið er á móti frjálsum framlögum
Reiknisnúmer: 0330-26-2569
Kennitala: 250668-5549

Nánari upplýsingar veita:
Þórður Guðjónsson (862-6700)
Rúnar Kristinsson (867-3569)