Fréttir

Knattspyrna | 16. september 2011

Mikilvægur heimaleikur hjá 4. flokki

Í dag, föstudaginn 16. september, leikur 4. flokkur síðasta leik sinn í úrslitakeppni C-liða þegar Keflavík og Selfoss mætast á Nettó-vellinum kl. 15:30.  Keflavík hefur þegar unnið KR og FH í úrslitakeppninni og dugir jafntefli í leiknum til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.  Við hvetjum fólk til að mæta á völlinn og hvetja strákana okkar.