Minnum á Facebook-síðuna
Við minnum á Facebook-síðu Knattspyrnudeildar sem opnaði fyrr í vetur. Síðan er hugsuð sem óformlegri vettvangur þar sem settar verði inn fréttir eins og á heimasíðunni en jafnframt ýmsar tilkynningar og óformlegra spjall. Síðast en ekki síst vonum við að stuðningsmenn geti orðið virkari og því hvetjum við fólk til að kíkja á nýju síðuna og taka þátt. Gert er ráð fyrir því að Facebook-síðan fái aukið vægi eftir því sem keppnistímabilið nálgast og verður þá vonandi skemmtilegur vettvangur fyrir deildina, iðkendur og stuðningsmenn okkar.