Minnum á Herrakvöld og Konukvöld
Við minnum á að föstudagskvöldið 21. mars verða Herrakvöld og Konukvöld á vegum Knattspyrnudeildar.
Herrakvöldið verður í Oddfellowsalnum og þar er dagskráin tilbúin. Boðið verður upp á sjávarréttahlaðborð en veislustjóri verður Þorkell Máni Pétursson. Á dagskránni er m.a. málverkauppboð og happdrætti, Auddi Blöndal skemmtir, Hjörleifur og Ómar spila og jafnvel bætist eitthvað óvænt við. Miðaverð er 6500 kr. og húsið opnar kl. 19:00.
Konukvöldið verður í félagsheimilinu við Sunnubraut. Við segjum nánar frá dagskránni þar þegar nær dregur.