Minnum á tilboð á nýjum æfingagöllunum
Við minnum á að nýr æfingagalli Keflavíkur er nú á tilboði hjá í K-Sport á Hafnargötu 29. Nýi gallinn verður seldur á sérstöku tilboði fram að jólum eða með 20% afslætti. Hann kostar því 11.990 í stað 14.990 og því er full ástæða til að hvetja fólk til að nýta sér tilboðið. Gallinn er auðvitað tilvalin jólagjöf fyrir ungt knattspyrnufólk og það á því enginn að þurfa að fara í jólaköttinn fyrir þessi jól.