MYNDIR: Bikarmeistaratitill 2.flokks
Eins og áður hefur komið fram varð 2. flokkur Keflavíkur bikarmeistari eftir sigur á Haukum/Markaregni á Ásvöllum í Hafnarfirði. Jón Örvar var mættur á völlinn og hér koma nokkrar myndir frá honum. Á annarri og þriðju myndinni má sjá mörk okkar stráka í uppsiglingu en þeir unnu 2-1.
Á vef Víkurfrétta má einnig sjá myndir af leiknum og myndband frá verðlaunaafhendingunni.