Fréttir

Knattspyrna | 12. september 2005

MYNDIR: Bikarúrslit hjá 3. flokki

Stelpurnar í 3. flokki léku á dögunum til úrslita í bikarkeppninni gegn liði Breiðabliks og fór leikurinn fram á Ásvöllum í Hafnarfirði.  Okkar stúlkur urðu að sætta sig við tap í leiknum en Blikastúlkur hafa verið með yfirburðalið í þessum flokki í sumar og urðu einnig Íslandsmeistarar.  En stelpurnar geta verið ánægðar með árangur sumarsins; þær komust í undanúrslit Íslandsmótsins og áttu skemmtilegan sprett í bikakeppninni þó ekki tækist að landa bikarnum sjálfum.  Framtíðin er því björt en þess má geta að fimm leikmenn 3. flokks léku með meistaraflokki í Landsbankadeildinni í sumar.  Hér eru nokkrar myndir sem Eygló Eyjólfsdóttir tók á Ásvöllunum.