Myndir frá Herrakvöldi
Herrakvöld Knattspyrnudeildar var haldið á hlaupársdaginn 29. febrúar. Þar fór allt vel fram og ekki annað að sjá en gestir hafi skemmt sér konunglega enda boðið upp á glæsilegar veitingar og skemmtiatriði. Kvöldið var fjáröflun fyrir ferð meistaraflokks karla til Tyrklands. Leikmenn liðsins létu ekki sitt eftir liggja og þjónuðu til borðs. Jón Örvar mætti á svæðið með myndavélina og hér er myndasyrpa frá kvöldinu.
´
Sungið fyrir Rúnar fyrrverandi.