Myndir frá Þýskalandsför
Það hefur varla farið fram hjá neinum að Keflavíkurliðið skrapp til Þýskalands á dögunum og leik Evrópuleik við lið Mainz í Frankfurt. Markmannsþjálfari Keflavíkur, Jón Örvar Arason, hefur verið duglegur við að taka myndir á leikjum liðsins í sumar ásamt eiginkonu sinni, Eygló Eyjólfsdóttur. Myndir þeirra hjóna hafa vakið verðskuldaða athygli en hægt er að sjá yfirlit yfir þær með því að smella á „Myndir“ hér efst á síðunni. Jón Örvar var að sjálfsögðu með myndavélina á lofti í Þýskalandsferðinni og nú erum við að vinna í að koma myndunum hér inn á síðuna en um 160-170 myndir er að ræða. Það gerist vonandi næstu daga en þangað til birtum við hér forsmekkinn af því sem von er á.
Byrjunarliðið stillir sér upp.
Strákarnir þakka áhorfendum fyrir.
Kristján og Jurgen Klopp, þjálfari Mainz, á blaðamannafundinum eftir leikinn.