MYNDIR: Glæsilegt lokahóf
Lokahóf Knattspyrnudeildar var haldið í Stapa á laugardag en fyrr um daginn hafði lokahóf yngri flokka farið fram í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Um kvöldið var svo komið að meistaraflokkum og 2. flokki að ljúka knattspyrnusumrinu með glæsibrag. Veittar voru viðurkenningar fyrir frammistöðuna í sumar og merka áfanga. Leikmenn stigu svo á stokk með mögnuð skemmtiatriði. Karlaliðin buðu bæði upp á söng og sönnuðu endanlega að leikmenn liðanna eru á réttri hillu á knattspyrnuvellinum. Kvennaliðið bauð hins vegar upp á fagran söng og fylgdi honum á eftir með framúrstefnulegum leikþætti. PUMA-sveitin mætti hress að vanda með nýstárlega verðlaunaafhendingu. Margt fleira var til gamans gert auk þess sem gestir borðuðu góðan mat og þeir hressustu dönsuðu fram eftir nóttu. Búið er að setja myndasyrpu frá hófinu inn á síðuna og það voru að sjálfsögðu hjónakornin Eygló Eyjólfsdóttir og Jón Örvar Arason sem tóku myndirnar.
Gestur fékk viðurkenningu fyrir 200 deildarleiki fyrir Keflavík.