Fréttir

Knattspyrna | 27. september 2011

MYNDIR: Lokahóf yngri flokka

Eins og við höfum áður sagt frá var lokahóf yngri flokka Keflavíkur haldið laugardaginn 24. september.  Nú er veglegt myndasafn frá lokahófinu komið á heimasíðuna en þar má m.a. sjá myndir af öllum verðlaunahöfum.  Eins og undanfarin ár voru það leikmenn meistaraflokka Keflavíkur sem sáu um að afhenda verðlaunin og að þessu sinni voru það þau Arnór Ingvi Traustason og Karitas Ingimarsdóttir.  Leikmenn yngri flokka létu  reyndar sitt ekki eftir liggja í viðurkenningunum en leikmenn í 4. flokki pilta gáfu þjálfurum sínum áritaðan bolta að skilnaði og til minningar um árangursríkt sumar og stúlkur sem nú ganga upp úr 4. flokki gáfu þjálfara sínum, Nínu Ósk Kristinsdóttur, skemmtilega gjöf.  Þetta má allt sjá í myndasafninu.