Fréttir

Knattspyrna | 13. ágúst 2011

MYNDIR: Naumt tap hjá stelpunum

Kvennaliðið okkar er nú í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppni 1. deildar.  Það var því mikið í húfi þegar toppliðið í riðlinum, FH, sótti okkar stelpur heim.  Svo fór að gestirnir unnu nauman sigur með marki á síðustu mínútu eftir að Keflavík unnið upp þriggja marka forystu FH af miklu harðfylgi.  Í síðustu umferðinni þarf Keflavík að sigra Sindra og um leið þurfa FH-ingar að sigra lið HK/Víkings sem nú situr í 2. sæti riðilsins sem allt snýst um.  FH hefur þegar tryggt sér efsta sætið.  Jón Örvar var á Nettó-vellinum og tók þar þessar myndir.