MYNDIR: Slakt gegn Val
Það verður að segjast eins og er að það var fátt um fína drætti hjá Keflavíkurliðinu þegar Valsmenn komu í heimsókn í Pepsi-deildinni. Okkar menn komust lítið áleiðis gegn gestunum sem unnu að lokum 2-0 sigur. Kristján Guðmundsson og hans menn fóru því með öll þrjú stigin en Keflavík tapaði fjórða deildarleiknum í röð. Hér koma nokkrar myndir sem Eygló Eyjólfsdóttir tók á Nettó-vellinum.