Fréttir

Knattspyrna | 28. júní 2011

MYNDIR: Tap í Kópavoginum

Okkar menn fóru ekki vel af stað eftir hléið langa í Pepsi-deildinni og þurftu að sætta sig við tap gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í Kópavogi.  Lokatölur urðu 2-1 fyrir heimamenn í leik sem verður varla minnst fyrir glæsilega knattspyrnu.  Það er stutt stórra högga á milli hjá Keflavík þessa dagana því strax á fimmtudag er komið að heimaleik gegn Val og á sunnudag er svo útileikur gegn KR í bikarnum.  Eygló Eyjólfsdóttir skellti sér á völlinn í Kópavogi og smellti af nokkrum myndum sem fylgja hér.