Nágrannaslagur á föstudag
Föstudaginn 31. janúar leika Keflavík og Grindavík í Faxaflóamóti kvenna en leikurinn verður í Reykjaneshöllinni kl. 20:30. Liðin leika í B-riðli mótsins en önnur lið í riðlinum eru Álftanes, Víkingur Ólafsvík og Breiðablik 2. Keflavík hefur þegar leikið einn leik í riðlinum og tapaði þá gegn Álftanesi.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta á leikina hjá stelpunum. Nýr þjálfari er nú við stjórnvölinn hjá liðinu en það er Heiðar Birnir Torleifsson. Eins og undanfarin ár er liðið að mestu skipað ungum leikmönnum.