Nágrannaslagur hjá stelpunum
Miðvikudaginn 13. ágúst mætast Keflavík og Grindavík í 1. deild kvenna. Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:00. Grindavíkurstúlkur eru í 3. sæti riðilsins en okkar lið er í neðsta sætinu. Okkar stelpur ættu að koma ákveðnar til leiks eftir að hafa innbyrt fyrsta sigur sumarsins í síðasta leik. Dómari leiksins verður Skúli Freyr Brynjólfsson og aðstoðardómarar þeir Sigurður Smári Hansson og Ægir Magnússon.