Fréttir

Nágrannaslagur í bikarnum
Knattspyrna | 19. maí 2012

Nágrannaslagur í bikarnum

Það verður sannkallaður nágrannaslagur í 32 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ en þá taka okkar menn á móti Grindavík.   Leikurinn verður á Nettó-vellinum miðvikudaginn 6. júní kl. 19:15.  Liðin hafa aðeins einu sinni áður mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991.  Sá leikur var í 2. umferð keppninnar og Keflavík vann 1-0 á heimavelli þar sem Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Aftur og nýbúnir.  Keflavík og Grindavík mætast í bikarnum.