Nágrannaslagur í bikarnum
Búið er að draga í fyrstu tvær umferðirnar í Borgunarbikar kvenna en þær fara fram í maí. Það verður nágrannaslagur í fyrstu umferðinni en þá mætast Grindavík og Keflavík. Leikurinn verður á Grindavíkurvelli föstudaginn 17. maí. Liðið sem sigrar leikur á heimavelli gegn Fylki í 2. umferð.