Fréttir

Knattspyrna | 17. mars 2008

Nágrannaslagur í Lengjubikarnum

Það verður nágrannaslagur í Lengjubikarnum á þriðjudaginn þegar Keflavík og Njarðvík mætast í Reykjaneshöllinni kl. 18:30.  Þessi lið hafa ekki oft fengið tækifæri til að mætast á knattspyrnuvellinum og því ljóst að bæði lið leggja allt í þennan leik.  Okkar menn byrjuðu vel í Lengjubikarnum í ár og unnu tvo fyrstu leikina en töpuðu um helgina fyrir Fjarðarbyggð.  Liðið hefur verið að smella saman og leikið ágætan fótbolta.  Njarðvíkingar hafa einnig leikið þrjá leiki og staðið sig vel; liðið tapaði naumt fyrir HK í fyrsta leiknum en gerði svo jafntefli við Fjarðarbyggð og Fylki.  Nágrannar okkar tefla fram ungu liði þessa dagana en hafa gömlu kempuna Gest Gylfason sér til halds og trausts.  Annar reynslubolti og fyrrverandi leikmaður okkar, Bjarni Sæmundsson, er hins vegar frá vegna alvarlegra meiðsla. 

Við hvetjum stuðningsmenn beggja liða til að kíkja í Höllina og sjá hörkuleik.


Gestur Gylfa í leik gegn Etzella frá Lúxemborg í Evrópukeppninni árið 2006.
Kappinn verður reyndar í Njarðvíkurbúningum í Reykjaneshöllinni en ekki
er ólíklegt að hann þurfi líka að ræða eitthvað við dómara þess leiks.
(Mynd: Jón Örvar)