Námskeið 2 hjá 8. flokk hefst á mánudaginn
Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur (námskeið 2) hefjast mánudaginn 2. júlí.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2006, 2007 og 2008.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15
Æfingastaður: Nýja æfingasvæðið aftan við Reykjaneshöll.
Smellið hér til að sjá kort af æfingasvæðinu.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Æfingatímabil:
- Námskeið 2: 2. júlí - 24. júlí (11 æfingar)
Verð: 6000 kr. fyrir námskeiðið. Ef fyrra námskeið var sótt, er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 4000 kr.
Systkinaafsláttur er veittur; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
Þjálfari: Ragnar Steinarsson, íþróttafræðinemi
Allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is