Fréttir

Natasha  semur við Keflavík
Knattspyrna | 4. febrúar 2017

Natasha semur við Keflavík

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur fengið góðan liðsstyrk í kvennalið félagsins en það er hún Natasha Moraa sem hefur gert samning til þriggja ára. Natasha hefur spilað með liði ÍBV síðan 2014 og var valin í úrvalslið Pepsi-deildarinnar á síðasta ári en hún hefur alls spilað 50 leiki hér  á landi og skorað í þeim 7 mörk.  Það er mikill fengur fyrir deildina að fá Natöshu til liðs við okkur í baráttunni að komast í deild þeirra bestu, Pepsi-deildina.