Fréttir

Naumt tap gegn KR
Knattspyrna | 23. febrúar 2014

Naumt tap gegn KR

Keflavík tapaði 2-1 gegn KR í Lengjubikarnum en leikið var í Reykjaneshöllinni.  Leikurinn byrjaði svo sannarlega með látum en Almarr Ormarsson kom gestunum yfir strax á fyrstu mínútunni og Jóhann Birnir Guðmundsson jafnaði á þeirri næstu.  Eftir það róaðist leikurinn allverulega en KR-ingar skoruðu svo sigurmarkið í uppbótartíma í lok leiks en þar var Aron Bjarki Jósepsson á ferðinni.

Keflavík er með þrjú stig eftir tvo leiki í Lengjubikarnum.  Næsti leikur er gegn Fram í Egilshöllinni sunnudaginn 2. mars kl. 19:00.

Jón Örvar tók myndina með fréttinni en á henni má sjá byrjunarliðið gegn KR.