Fréttir

Naumt tap hjá stelpunum gegn FH
Knattspyrna | 8. mars 2016

Naumt tap hjá stelpunum gegn FH

Meistaraflokkur kvenna spilaði æfingaleik gegn Pepsi-deildarliði FH í Reykjaneshöll á mánudaginn. Keflavíkurstúlkur byrjuðu betur og leiddu 1-0 í hálfleik með marki frá Anitu Lind Daníelsdóttur.  FH gerði þrjú mörk í seinni hálfleik en okkar stúlkur settu eitt mark í lokin.  Þar var að verki Sveindís Jane Jónsdóttir og endaði leikurinn því 2-3 fyrir gestina úr Hafnarfirði.  Stúlkurnar okkar áttu flottan leik og gáfu Pepsi deildarliði FH hörkuleik.

Lið Keflavíkur í leiknum: 
Auður Erla Guðmundsdóttir (m), Eva Lind Daníelsdóttir (Berta Svansdóttir), Kristrún Ýr Holm, Þóra Kristín Klemensdóttir, Ólöf Stefánsdóttir (Íris Una Þórðardóttir), Sólveig Lind Magnúsdóttir (Björk Lind Snorradóttir), Ljiridona Osmani (Katla María Þórðardóttir), Brynja Pálmadóttir (Guðrún Lísa Ingþórsdóttir), Anita Lind Daníelsdóttir (fl.), Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir (Birgitta Hallgrímsdóttir), Sveindís Jane Jónsdóttir.

Næsti leikur hjá stelpunum er á föstudaginn í Faxaflóamótinu gegn Víking Ó. Leikurinn fer fram í Reykjaneshöll kl. 20:20.