Fréttir

Naumur sigur gegn KF
Knattspyrna | 8. apríl 2013

Naumur sigur gegn KF

Keflavík vann 1-0 sigur á liði KF þegar liðin mættust í Lengjubikarnum á heimavelli okkar í Reykjaneshöllinni.  Það var Hörður Sveinsson sem gerði eina mark leiksins á 77. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Keflavík fékk átta stig í riðlinum og er sem stendur í 5. sæti en gæti endað sæti neðar.  Næst á dagskrá er svo æfingaferð til Oliva Nova á Spáni.

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Andri Fannar Freysson, Fuad Gazibegoivc, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Halldór Kristinn Halldórsson, Bojan Stefán Ljubicic, Sigurbergur Elísson, Frans Elvarsson, Arnór Ingvi Traustason, Jóhann Birnir Guðmundsson, Marjan Jugovic.
Varamenn: Bergsteinn Magnússon, Ásgrímur Rúnarsson, Magnús Ríkharðsson, Magnús Þór Magnússon, Elías Már Ómarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Hörður Sveinsson.