Nettó og Keflavík með áframhaldandi samstarf
Knattspyrnudeild Keflavíkur og Nettó hafa skirifað undir samstarfssamning til næstu tveggja ára. Nettó hefur verið einn stærsti styrktaraðili deildarinnar og er það mikils metið. Nettó verður áfram á búningum Keflavíkur og Nettóvöllurinn verður áfram a.m.k. næstu tvö árin.
Á myndini eru það þeir Jón Benediktsson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur og Gunnar Egill Sigurðsson framkvæmdastjóri Verslunarsviðs að skrifa undir og handsala samninginn.
Með Jóni og Gunnari á myndinni eru þau Sigurbergur Elísson og Amber Pennybaker leikmenn meistaraflokksliða Keflavíkur.