Fréttir

Knattspyrna | 9. júní 2005

Nína gengin til liðs við Keflavík

Nína Ósk Kristinsdóttir er gengin til liðs við Keflavík. Nína hefur leikið undanfarin ár með liði Vals og verið fastamaður í því geysisterka liði.  Nína er búin að spila A-landsleiki undanfarið og  verið einn besti sóknarmaður landsins.  Það er mikill styrkur fyrir Keflavík að fá Nínu til liðs við okkur og bjóðum við hana velkomna heim aftur, en Nína lék með RKV síðast þegar hún lék hér fyrir sunnan.


Nína Ósk Kristinsdóttir leikur með Keflavík í sumar.
(Mynd:
Víkurfréttir)