Níunda jafnteflið
Enn eitt jafnteflið og þá eru þau orðin níu alls. Jafntefli við Þrótt 2-2 á útivelli á sunnudag i leik sem Keflavík hefði átt að klára í fyrri hálfleik. Slíkir voru yfirburðirnir. Jóhann Birnir kom Keflavík yfir með góðu skallamarki eftir sendingu frá Hauki Inga á 13. mínútu. Þróttarar jöfnuðu í lok hálfleiks með ágætis marki. Ótrúlegt að Keflavík skyldi ekki vera að minnsta kosti þremur mörkum yfir í hálfleik en það þarf víst að klára færin.
Eitthvað hefur hálfleikurinn farið betur í Þróttarana og þeir komu miklu grimmari inn og hófu seinni með látum. Þeir komust yfir á 50. mínútu og voru svo nálægt því að bæta við marki stuttu síðar. Keflavík gerði þrjár breytingar um miðjan hálfleikinn þegar Gummi, Símun og Hörður komu inn. Keflavík sótti í lokin og náðu að jafna á 85. mínútu með marki frá fyrirliðanum Hólmari Erni. Þar með er það á hreinu að Keflavík vann ekki leik á útivelli í sumar.
Keflavík er í 6. sæti þegar ein umferð er eftir og gæti lyft sér um eitt sæti með sigri á ÍBV á laugardaginn og þá má Breiðablik ekki vinna sinn leik gegn Grindavík. FH varð Íslandsmeistari og óskum við þeim til hamingju með það.
Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Alen Sutej, Brynjar Örn Guðmundsson, Hólmar Örn Rúnarsson fyrirliði, Haraldur Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson (Símun Eiler Samuelsen 65.), Jóhann Birnir Guðmundsson (Hörður Sveinsson 75.) og Haukur Ingi Guðnason (Guðmundur Steinarsson 65.).
Varamenn: Ómar Jóhannsson, Magnús Þórir Matthíasson, Sverrir Þór Sverrisson og Jón Gunnar Eysteinsson.
Áhorfendur: 568.
Dómarar: Tveir að þessu sinni, Valgeir Valgeirsson dæmdi fyrri hálfleikinn og Gunnar Jarl Jónsson þann seinni vegna meiðsla Valgeirs.
Kristján þjálfari var í viðtali á fótbolti.net og birtum það hér með leyfi:
Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur var ekki beint sáttur með 2-2 jafntefli gegn Þrótti í Laugardalnum. Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik, en Þróttarar jöfnuðu metin fyrir lok fyrri hálfleiks. Heimamenn í Þrótti komust síðan yfir í byrjun seinni hálfleiks en Hólmar Örn Rúnarsson náði að jafna metin fyrir Keflavík. Þess má geta að Keflavík hefur ekki unnið leik á útivelli í sumar.
,,Ég er langt því frá sáttur með stig. Við eigum að vera búnir að afgreiða þá í fyrri hálfleik . Við verðum bara værukærir í sóknaraðgerðum okkar upp við teyginn og eigum að skora miklu fleiri mörk eftir að við komumst 1-0 yfir," sagði Kristján Guðmundsson við Fótbolta.net eftir leik.
,,Þetta var bara einhvernveginn of auðvelt fyrir okkur að komast í þessi færi og þá kom upp kæruleysi og ég er alveg hundfúll með það að hafa ekki unnið þennan leik. Þetta var enn eitt jafnteflið á útivelli. Það er fínt að koma til baka eftir að hafa lent undir, en við áttum svo að vinna leikinn í kjölfarið."
Valgeir Valgeirsson dómari leiksins meiddist aftan í læri og gat ekki haldið áfram í síðari hálfleiknum. Því var gert tuttugu mínútna lengri pásu á milli hálfleika til þess að Gunnar Jarl Jónsson gæti komið og dæmt. Það er spurning hvort þessi skipti hafi haft mikil áhrif á Keflvíkinga.
,,Það getur vel verið, en Þróttararnir voru í nákvæmlega sömu aðstöðu og við. Þeir þurftu aðbíða eftir dómaranum rétt eins og við. En auðvitað var svekkjandi að fá þetta mark á sig og fara með stöðuna 1-1 í hálfleik á meðan að við áttum að vera 3 eða 4-0 yfir í hálfleik. Það er náttúrulega alveg út úr korti."
Kristján segir að spilamennskan í fyrri hálfleik hafi verið mjög góð nema það að liðið hafi átt að skora fleiri mörk.
,,Við erum að færa boltann miklu, miklu betur. Veggspilið er að ganga betur hjá okkur og við erum að komast betur upp í hornin. Við náðum að brjótast vel inn í teyginn, en það var minna af því í seinni hálfleik."
Gengi Keflavíkur hefur ekki verið neitt spes í sumar og liðið er um miðja deild og dottið út úr bikarnum. Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir Suðurnesjamenn, sem enduðu í öðru sæti síðasta sumar.
,,Það eru bara ástæður fyrir öllu og það borgar sig eiginlega ekki að tíunda þær því að það hlustar enginn á það ef maður kemur með einhverja ástæður fyrir slæmu gengi. Við hefðum viljað ná fjórða sætinu með sigri í dag og þá hefði þetta litið aðeins betur út. Það er ýmislegt sem að hefur gengið á í sumar sem verður til þess að liðið sé í þessari stöðu," sagði Kristján að lokum við Fótbolta.net.
Jói búinn að setj´ann og fyrsta mark leiksins komið.