Fréttir

Knattspyrna | 8. febrúar 2008

Norðurálsmót 6. flokks á laugardag

Þá styttist í 6. flokks mót Keflavíkur sem ber nafnið "NORÐURÁLS - mótið".  Leikið verður í Reykjaneshöll laugardaginn 9. febrúar.  Alls er 50 lið skráð til leiks frá 15 félögum; Keflavík, Njarðvík, Grindavík, ÍBV, Reyni, Víði, HK, FH, ÍR, Skallagrími, Leikni, Val, Haukum, Fylki og Þrótti V.  Gera má ráð fyrir um 450 keppendum auk þjálfara, liðsstjóra og vonandi mikils fjölda foreldra/forráðamanna.  Það má því búast við miklu fjöri í Reykjaneshöllinni á laugardaginn.

Argentína, Brasilía deildir
Chile, Danmörk, England deildir
Vallarskipan